Sælar skvísur
Ákvað að skrifa færslu hérna þar sem ég þarf að koma svo mörgum skilaboðum til ykkar….og gleymdi danska sim kortinu mínu á Íslandi….gott Hildur gott!!!! Allavega þá kem ég mér bara að efninu….ég hef fernt að segja og spurja:
1. Ykkur er öllum boðið í kökuteiti til okkar Ellu gellu á sunnudaginn kl. 16. Teitið verður haldið heima hjá mér á H.C. Ørsted kollegíinu, íbúð 2013 (næstum því alveg lengst inn botnlangann)….nú og ef þið villist þá getið þið bara hringt og fengið leiðbeiningar (sim kortið mitt verður væntanlega komið þá) eða bara staðið og kallað nafnið mitt eins hátt og þið getið og vonast til þess að ég heyri í ykkur.
2. Á fimmtudaginn eruð þið allar velkomnar í pastarétt til mín (við Elín og Halldís ætlum að hittast til að ráða ráðum okkar varðandi adventure race keppnina sem við erum að fara að taka þátt í á laugardaginn…læra að lesa á kort og áttavita og sonna…) Væri samt ágætt ef þið létuð vita hvort þið mætið svo ég viti hvað ég á að gera ráð fyrir mörgum í mat. Þið eruð svo auðvitað allar velkomnar að kvetja okkur á laugardaginn.
3. Við Halldís vorum að tala um að endurstofna skokkklúbb og fara út að hlaupa saman 1-2 í viku. Eruð þið game í það???
4. Ég var að velta fyrir mér hvort ykkur langaði að fara í hópferð til Århus 18. október. Þá er nebbla rosa skemmtilegt adventure race keppni þar (sem ég, Þórdís og Berglind tókum þátt í, í fyrra). Alls konar skemmtilegar þrautir….rapelling, kano, kajak, O- løb, adventuresvømning, speedbåd, ildslugning, klatring, død mur og margt fleira….getið lesið meira um keppnina á www.aacc.dk. Svo gætum við farið saman út að borða eftir keppnina og kíkt á djammið í Århus um kvöldið. Hvernig líst ykkur á?
Jæja…þá er það ekki fleira í bili lömbin mín.
Hillpill