Beach volley
maí 15, 2008
Hola chicas
Okkur Þórdísi datt í hug að halda áfram að nýta góða veðrið í eitthvað skemmtilegt….svo það verður strandblak á Raskinu fyrir þá sem vilja á lau. um kl. 15 (so far mæta ég, Þórdís, Sandra færeyingurinn okkar og Einar Logi). Planið er að hittast og leika okkur í blaki (Þórdís mælir með að fólk sé í sokkum í blakinu því kettirnir á Raskinu eiga það til að pissa í sandinn á strandblakvellinum…) og að sjálfsögðu má koma með eitthvað annað “útidót” til að leika með. Hugmyndin var svo að hafa svona létt “eftermiddagshygge” þar sem okkur finnst nú ekki leiðinlegt að borða….þannig að allir taka einhverjar léttar veitingar með sér. Hvernig líst ykkur á þetta? Og hverjar komast? Endilega kommentið hvort þið mætið og þá hvað þið ætlið að hafa með ykkur.
Chiao
Hillpill
Hugmyndin er að sjálfsögðu very nice og vil ekki vera partýpúber (á góðri íslensku) ennnnn, þarf ansi mikið að læra og grill á morgun og hittingur hjá Halldísi á mán. svo að ég er ekki alveg viss hvort ég kæmi… væri þó líklegri til að mæta ef við hittumst mun seinna, t.d. kl.6?!
Og annað – Gyða, Halldís og Guðný eru allar í burtu!
hey, góð hugmynd.. en ég var því miður stödd í Árósum á laugardaginn… mæti vonandi næst;)
Jæja Stúlkur – nú er komið að því – Kvennahlaup ÍSÍ. Nú er bara að binda á sig hlaupskóna og vera klár í skokk eða labb gírinn þann 7.júní því hið árlega Sjóvá KvennaHlaup ÍSÍ verður haldið líka hérna í Odense í ár. Hlaupið fer fram þann 7.júní og er áætlað að byrja um kl. 11. Hlaupastaðurinn er Fruens Bøge og er hlaupaleiðinn ca.3 km. Þátttökugjaldið er 75. DKK og er innfalið í verðinu er bolur, verðlaunapeningur, svaladrykkur og ávextir. Bolurinn í ár er í flottum fjólubláum lit með nýju kvenlegu sniði og úr léttu og þægilegu efni. Stærðirnar eru 4-6 ára, 8-10 ára, 12-14 ára, S, M, L, XL, XXL, XXXL. Skráning fer fram hjá Sirru – sirrragreta@hotmail.com og þarf að vera búið að skrá sig fyrir 25.maí þannig að það náist að senda bolina til okkar – en þátttökugjaldið er greitt þegar bolirnir eru afhentir nánar um það síðar. Það sem þarf að koma fram í skráningu er hve margir taka þátt og stærð af bolum.
Endilega sem flestir að skrá sig og gera þetta að árlegum viðburð hérna í Odense.
Kær kveðja Sirra
Endilega látið allar vita!!
smá innlegg frá mér
kv. Erna