Morgun Þrek
september 25, 2008
Sælar Stelpur
Ég (Þórdís) og Hildur erum að byrja að kenna morgun þrek á mánudags og fimmtudags mognum í MOUH frá kl 06:15-07:15. Byrjum næsta mánudag þann 29.09.2008.
Tímin gengur út á upphitun, svo þrekhring með mismunandi þrek og styrktar æfingum bæði með sinni eigin líkamsþyngd, með lóðum, æfingar á dýnum, æfingar á boltum, æfingar með æfingar teygjum, spinnighjól, erobik pallar og fleira. Síðan er teygjur í endann.
Skráning er hafinn á heimasíðu MOUH, endilega að skrá sig ef þið hafið áhuga.
kv. Þórdís og Hildur
Hlaupa í dag 25.09.08
september 25, 2008
hæ hæ stelpur,
Ætlum við ekki að hlaupa í dag, hittast klukkan 17: 00 á sama stað og síðast niðri í bæ við Odense ánna.
Ég (Þórdís) ætla að mæta ég veit að Hildur er veik og kemur ekki.
Ódýrt flug …..
september 18, 2008
Netklúbbur Iceland Express,18. september 2008 |
![]() |
Hausttilboð til Evrópu
Fyrir aðeins 7.890 kr. átt þú möguleika á að skipta út íslenska haustveðrinu í nokkra daga. Hugsa sér!
Hvert: Til Köben, London, Alicante, Berlínar, Friedrichshafen og Varsjár.
Fljúgðu: Frá 20. september 2008 til 31. mars 2009.
Hve mikið: Frá 7.890 krónum með sköttum og greiðslum.
Kauptu: Salan hefst kl. 12:00, í dag 18.sept og lýkur kl. 23:59 á föstudagskvöldið, 19. sept.
Smáa letrið: Takmarkað framboð og valdar dagsetningar.
Fljótandi Súkkulaði kaka ….. ala. Þórdís Ú
september 17, 2008
Fljótandi Súkkulaði kaka f. 4-6
300 gr dökkt súkkulaði
120 gr smjör
60 gr sykur
3 egg
5 msk hveiti
1/2 tsk lyftiduft
100 gr hvítt súkkualaði – saxað
3/4 bolli mjólk
örlítið salt
- Bræðið súkkulaðið og smjörið við vægan hita, og látið svo kólna aðeins.
- Hrærið eggin og sykurinn vel saman eða þangað til það er létt og ljóst.
- Blandið brædda súkkulaðinu og þeyttu eggjunum saman og blandið þurrefnum og mjólkinni út í og hrærið.
- Setjið í mót, ekki og þunnt ca. 3 cm, stráið hvítu súkkulaði yfir og hrærið örlitið.
- Bakið í 220 gráðum heitum ofni í 12-15 mínútur ( í combi ofni bakið á 140 í 15-20 mín). Kakan á að loka sér að ofan en vera mjúk og fljótandi undir á að renna til /bylgjast þegar mótið er hreyft.
- Gott að bera kökuna fram með vanellu ís eða rjóma.
Hlaup á morgun, fimmtudag.
september 10, 2008
Ég ætlaði bara að athuga hvort við ætlum ekki örugglega á hlaupa á morgun eins og talað var um á sunnudaginn.
Var staður og stund ákveðin? Kl.17 við Kongens Have (þar sem svanabátarnir eru) eða viljið þið hittast einhversstaðar annarsstaðar??
Endilega látið vita hvort þið komið.
Ég (Guðný) ætla allavega að mæta.
Carpe Diem;)
Afmælis kvöldkaffi :)
september 8, 2008
Sælar dömur … !!
Þar sem ég á afmæli þann 16 september næstkomandi og verð alltaf yndri með hverju ári, þá langar mér að bjóða ykkur í smá kvöldkaffi mánudaginn 15.september klukkan 18:00.
Klukkann 18:00 verður boðið upp á súpu og brauð ásamt tilheyrandi álegg og þar á eftir verða nokkrar sykur bombur ……….
kv. Þórdís Ú
Bland í poka
september 2, 2008
Sælar skvísur
Ákvað að skrifa færslu hérna þar sem ég þarf að koma svo mörgum skilaboðum til ykkar….og gleymdi danska sim kortinu mínu á Íslandi….gott Hildur gott!!!! Allavega þá kem ég mér bara að efninu….ég hef fernt að segja og spurja:
1. Ykkur er öllum boðið í kökuteiti til okkar Ellu gellu á sunnudaginn kl. 16. Teitið verður haldið heima hjá mér á H.C. Ørsted kollegíinu, íbúð 2013 (næstum því alveg lengst inn botnlangann)….nú og ef þið villist þá getið þið bara hringt og fengið leiðbeiningar (sim kortið mitt verður væntanlega komið þá) eða bara staðið og kallað nafnið mitt eins hátt og þið getið og vonast til þess að ég heyri í ykkur.
2. Á fimmtudaginn eruð þið allar velkomnar í pastarétt til mín (við Elín og Halldís ætlum að hittast til að ráða ráðum okkar varðandi adventure race keppnina sem við erum að fara að taka þátt í á laugardaginn…læra að lesa á kort og áttavita og sonna…) Væri samt ágætt ef þið létuð vita hvort þið mætið svo ég viti hvað ég á að gera ráð fyrir mörgum í mat. Þið eruð svo auðvitað allar velkomnar að kvetja okkur á laugardaginn.
3. Við Halldís vorum að tala um að endurstofna skokkklúbb og fara út að hlaupa saman 1-2 í viku. Eruð þið game í það???
4. Ég var að velta fyrir mér hvort ykkur langaði að fara í hópferð til Århus 18. október. Þá er nebbla rosa skemmtilegt adventure race keppni þar (sem ég, Þórdís og Berglind tókum þátt í, í fyrra). Alls konar skemmtilegar þrautir….rapelling, kano, kajak, O- løb, adventuresvømning, speedbåd, ildslugning, klatring, død mur og margt fleira….getið lesið meira um keppnina á www.aacc.dk. Svo gætum við farið saman út að borða eftir keppnina og kíkt á djammið í Århus um kvöldið. Hvernig líst ykkur á?
Jæja…þá er það ekki fleira í bili lömbin mín.
Hillpill