Bland í poka
september 2, 2008
Sælar skvísur
Ákvað að skrifa færslu hérna þar sem ég þarf að koma svo mörgum skilaboðum til ykkar….og gleymdi danska sim kortinu mínu á Íslandi….gott Hildur gott!!!! Allavega þá kem ég mér bara að efninu….ég hef fernt að segja og spurja:
1. Ykkur er öllum boðið í kökuteiti til okkar Ellu gellu á sunnudaginn kl. 16. Teitið verður haldið heima hjá mér á H.C. Ørsted kollegíinu, íbúð 2013 (næstum því alveg lengst inn botnlangann)….nú og ef þið villist þá getið þið bara hringt og fengið leiðbeiningar (sim kortið mitt verður væntanlega komið þá) eða bara staðið og kallað nafnið mitt eins hátt og þið getið og vonast til þess að ég heyri í ykkur.
2. Á fimmtudaginn eruð þið allar velkomnar í pastarétt til mín (við Elín og Halldís ætlum að hittast til að ráða ráðum okkar varðandi adventure race keppnina sem við erum að fara að taka þátt í á laugardaginn…læra að lesa á kort og áttavita og sonna…) Væri samt ágætt ef þið létuð vita hvort þið mætið svo ég viti hvað ég á að gera ráð fyrir mörgum í mat. Þið eruð svo auðvitað allar velkomnar að kvetja okkur á laugardaginn.
3. Við Halldís vorum að tala um að endurstofna skokkklúbb og fara út að hlaupa saman 1-2 í viku. Eruð þið game í það???
4. Ég var að velta fyrir mér hvort ykkur langaði að fara í hópferð til Århus 18. október. Þá er nebbla rosa skemmtilegt adventure race keppni þar (sem ég, Þórdís og Berglind tókum þátt í, í fyrra). Alls konar skemmtilegar þrautir….rapelling, kano, kajak, O- løb, adventuresvømning, speedbåd, ildslugning, klatring, død mur og margt fleira….getið lesið meira um keppnina á www.aacc.dk. Svo gætum við farið saman út að borða eftir keppnina og kíkt á djammið í Århus um kvöldið. Hvernig líst ykkur á?
Jæja…þá er það ekki fleira í bili lömbin mín.
Hillpill
Þvílík og önnur eins eðalfærsla hefur sjaldan sést. Ég mæti hress í allt, eða kannski ekki pastaið á fimmtudaginn – læt vita tomorrow!
Mæti s.s. í afmælið, líst vel á skokkið, vil a.m.k. prófa en þarf að fara mér hægt, hlaupa stutt í einu… og ég mæti að hvetja á lau., vona að einhver nenni með í hjólatúr?? Og ég mæti til århus, ekki spurning… þekkum nógu marga til að geta fengið gistingu held ég svo að gætum tekið gott djamm saman!
Kv.Berglind þreytta
Þvílíkt gott framtak hjá þér Hildur heyrheyr
Þetta hljómar allt rosalega vel og ég segi allavega klárt já við afmælinu á sunnudaginn. Skokkið er líka góð hugmynd, aldrei að vita nema ég mæti… já og svo verðum við að fara að byrja aftur í badmintoninu. Væri best ef við gætum fengið fastan völl, ég skal ath með það.
Veit ekki hvort ég kemst til Aarhus, er líklega að fara að spila á tónleikum þá. Og ætla líka að fá að svara þér með pastaréttinn á morgun…. þyrfti helst að læra huhummmm
Og Berglind mér líst vel á hjólatúr á laugardaginn, stefnum á það
Bæjó,
Gyða piða
Mér líst vel á þetta allt nema að ég verð í Rvk 18. október þannig að það er ekki hægt að gera ráð fyrir mér í það
kv. Halldís sem svaf 11 tíma í nótt!!!!!
Vá allt að gerast bara. Frábært að fá svona mörg boð á einu bretti. Ég er sko alltaf til í kökuboð… check! Og ef maður borðar kökur þarf maður líklegast að hlaupa þær af sér… check! Adventure race-ið hljómar mjög vel.. ætla að athuga með Hildi mína í Århus og sjá hvernig stemmarinn er þeim megin við litlubeltisbrúna! En held ég segi pass við pastanu þar sem ég ætla að kíkja í “boksning” í MOUH á morgun. Takk samt;)
Og með hvatninguna þarf ég að sjá til, er víst að fara á djammið á föst. og veit ekki hvernig heilsan verður snemma á laugardagsmorgni. Sendi ykkur samt alla mína strauma… hef trú á ykkur:)
Ég kem ekki í matinn tomorrow!
Vá það er ekkert smá uppástungur og allt á einu bretti.
1. Afmæli => ég mæti sko í kökuteiti og tek jafnvel kallinn með.
2. Pasta => Klukkan hvað er pasta á morgunn kem kannski ???
3. Skokk => gott framtak en reykna ekki með að hlaupa úti með ykkur. En kannski Hjóla ég með Berglingi.
4. Aventur race => Er sko alveg til þetta var svooooo gaman í fyrra… verð þá að fara að hreyfa á mér rassinn góð hvatning til þess.
Sendi ykkur góða strauma á laugardag og sjáumst pottþétt á sunnudag og kannski á morgunn.
þið eruð nú meiri hetjurnar að leggja í þetta adventure dót.. hvar er þetta á lau?? ég væri sko til i að koma að hvetja ykkur.. þá get ég séð hvort ég þori að prufa næst
Keppnin er í Langesøskoven ca. 15 km fyrir utan Odense. Berglind ætlar allavega að hjóla þangað til að hvetja okkur og kannski Gyða líka. Þið gætuð þá bara verið samferða. Síminn hjá Berglindi er 28572816 ef þú vilt hafa samband við hana
Eg er með í allt
ekki nema að ég fari til Íslands í haustfríinu !!!