Fljótandi Súkkulaði kaka ….. ala. Þórdís Ú
september 17, 2008
Fljótandi Súkkulaði kaka f. 4-6
300 gr dökkt súkkulaði
120 gr smjör
60 gr sykur
3 egg
5 msk hveiti
1/2 tsk lyftiduft
100 gr hvítt súkkualaði – saxað
3/4 bolli mjólk
örlítið salt
- Bræðið súkkulaðið og smjörið við vægan hita, og látið svo kólna aðeins.
- Hrærið eggin og sykurinn vel saman eða þangað til það er létt og ljóst.
- Blandið brædda súkkulaðinu og þeyttu eggjunum saman og blandið þurrefnum og mjólkinni út í og hrærið.
- Setjið í mót, ekki og þunnt ca. 3 cm, stráið hvítu súkkulaði yfir og hrærið örlitið.
- Bakið í 220 gráðum heitum ofni í 12-15 mínútur ( í combi ofni bakið á 140 í 15-20 mín). Kakan á að loka sér að ofan en vera mjúk og fljótandi undir á að renna til /bylgjast þegar mótið er hreyft.
- Gott að bera kökuna fram með vanellu ís eða rjóma.
ohh, ég fæ bara vatn í munninn við að lesa uppskriftina. Þarf klárlega að prófa að baka hana mjög fljótlega:)