Ódýrt flug …..
september 18, 2008
Netklúbbur Iceland Express,18. september 2008 |
![]() |
Hausttilboð til Evrópu
Fyrir aðeins 7.890 kr. átt þú möguleika á að skipta út íslenska haustveðrinu í nokkra daga. Hugsa sér!
Hvert: Til Köben, London, Alicante, Berlínar, Friedrichshafen og Varsjár.
Fljúgðu: Frá 20. september 2008 til 31. mars 2009.
Hve mikið: Frá 7.890 krónum með sköttum og greiðslum.
Kauptu: Salan hefst kl. 12:00, í dag 18.sept og lýkur kl. 23:59 á föstudagskvöldið, 19. sept.
Smáa letrið: Takmarkað framboð og valdar dagsetningar.
Þetta var geggjað …..
við Einar Logi fengum flug heim um jólinn fyrir okkur bæði fram og til baka á 33.000 kr
Verðum 18.des – 30.des. Svo hverjir verða hér um áramótin…?????????????
vá heppin að fá svona ódýrt far
ég er að skoða núna og það ódýrasta sem ég sé fyrir mig fram og til baka er á 39þús :S
Mælið þið með því að drífa í bara að panta núna? haldið þið að þetta eigi bara eftir að hækka þegar nær dregur??
kv. Ein sem kann ekkert á þetta flugvesen
hmm, það koma oft svona tilboð og þess vegna alveg líklegt að það komi tilboð frá Icelandair einhverntímann fyrir jól! En ég lofa engu og eins og staðan er heima núna er kannski ekkert verið að bjóða mikið af tilboðum.
Ég fékk mitt far á 19 þús. en valdi þá dags. eftir verði og fer 17. des (soldið snemma) og kem ekki aftur fyrr en 7. jan (soldið seint), en ég er sátt:)
já einmitt… ég bara kemst ekki fyrr en 18. er nebbla í prófi 17. og svo þarf ég að koma sem fyrst aftur út til að læra fyrir anatomiuna.. uss.. það verður ekki mikil afslöppun hjá mér þessi jólin
Hæ Erna
Ég held að þetta eigi bara eftir að hækka, sá að visu áðan að ef þú ferð 18 heim 30 til baka þá er það 33.780 …. ef þú ferð seinna til baka t.d eftir áramót þá verður það bara dýrara…. ekkert ódýrt flug fyrr en 8 jan til baka….
En svo eins og Guðný segir þá getur icelandair komið með tilboð en ég myndi ekki stóla á það.
Við Einar logi vorum búin að vera að skoða flug áður en tilboðið kom og það ódýrasta sem við fundum var 42.000 á mann.
Ódýrasta flugið frá Icelandair þann 18 des og til baka 3.jan er 45.000 ….
En 20 des og 30 des til baka er 39.000…
þetta er erfitt ….. maður veit aldrei hvort það komi önnur tilboð.
Ég flýg aldrei með Icelandair og man ekki hvort þeir hafa verið með svona tilboð áður.
úff nei einmitt.. maður veit aldrei.. ætli maður skelli sér ekki bara á far núna.. svo maður komist nú heim